Helenublogg
Myndasíður - Photosites
10.11.2006 16:18:50 / helenam

Tennur og ekki lengur tennur

Hæ hæ

Ég get ekki talað núna án sársauka, kyngt eða brosað. Þetta er ömurlegt!!! Ég var semsagt að koma frá tannlækninum mínum sem ákvað að það væri fínt að taka eins og 3 tennur úr mér í einu. Þetta voru allt endajaxlar og maðurinn þurfti að beita öllu sínu afli til að ná þeim út... þeir ætluðu sko ekki að gefa sig. En þetta hafðist að lokum og nú er ég tuttuguþúsund krónum, 3 tönnum og allaveganna 100 brosum fátækari :(

sársaukakveðja
Helena
Rauðkan skrifaði
Æ - elskan mín! Þetta er ekki nógu gott! Þú verður bara að láta kallin stjana við þig og elda fyrir þig súpu ;) Vona að þér líði betur núna samt.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.