Halló halló
long time no see!!! talandi um að láta líða langt á milli
blogga 
Það er óhætt að segja að það sé nóg búið að gerast síðustu
mánuði. Ég ætla nú ekki að segja ykkur allt svona í einu en kannski
stikla á stóru.
Apríl: Ég ásamt fleiri BESTurum tók á móti fullt af
ferðalöngum frá norðurlöndunum á svokölluðum svæðafundi (RM). Þetta
var mikil vinna en vá hvað það var rosalega gaman og útlendingarnir
voru svo hrifnir af Íslandi og Íslendingum að þeir eru nánast allir
búnir að koma aftur að heimsækja okkur síðan þá!!!
Seint í apríl voru Bjarki (bróðir minn) og Emma svo pússuð saman
við fallega en fámenna athöfn og var haldin veisla heima hjá okkur.
Ég og pabbi sungum við brúðkaupið og við vorum svo heppin að fá
Teit til að spila með okkur á Saxafón og gítar... algjör snillingur

Maí: próf, veikindi og vinna einkenndu þennan mánuð en ég var
svo óheppin að fá streptakokkasýkingu örfáum dögum fyrir
fuglafræðiprófið mitt svo ég varð að skrá mig í sumarpróf
Þetta
var nú samt soldið skondið þar sem þetta var seinasta prófið mitt á
BS ferlinum og bara námsferli mínum yfir höfuð sem ég þarf að taka
sjúkrapróf og það var akkúrat síðasta prófið mitt.
Júní: einkenndist af vinnu, ferðalögum og útlendingum. Ég fór á
Hallormsstað í nokkra daga til að koma henni Brynhildi inn í það
sem ég var að vinna í fyrra og stoppaði helgarnar í kring á
Akureyri og átti það yndislega daga í sól og blíðu 
Svo tók ég og aðrir BESTarar á móti þátttakendunum í sumarkúrsinn
okkar sem fjallaði um vetni og jarðvarma á Íslandi. Þetta
heppnaðist flest allt rosalega vel og ég held að flestir hafi verið
ágætlega sáttir við útkomuna.
Júlí: Ferðalög og vinna... Ég gekk Laugarveginn með Lindu, Ragga
og fleira góðu fólki auk þess sem ég vann og vann enn meira í
þessum mánuði... annars mest lítið að frétta.
Ágúst: ferðalög og vinna, enn einu sinni. Eina virkilega
markverða sem ég er búin að gera núna er að ég vann í eina viku í
Esjufjöllum en það eru fjöll sem eru að koma almennilega undan
jökli núna (Vatnajökli) og á sér því stað mikil 1. stigs framvinda
og það er alveg yndislegt að vera þar. Ég þurfti að ganga yfir
skriðjökul (breiðamerkurjökul) og það var nú engin smá upplifun...
margra metra djúpar sprungur allt í kringum mig og eitt feilspor
gæti komið manni ofan í eina slíka og tæplega skilað manni aftur
upp. En þetta var alveg magnað og meiriháttar upplifun.
Núna á ég að vera að læra fyrir sumarprófið mitt í fuglafræði...
gengur líka svona vel!!! (fann allt í einu tíma til að blogga
)
en já, bara hressandi 
Þar til næst
Kossar
Helena